Sorgarmidstod
This organization has already been registered
Someone in your organization has already registered and setup an account. would you like to join their team?Profile owner : s***********d@s***********d.is
Mission Statement
Markmið Sorgarmiðstöðvar er að styðja við syrgjendur og alla þá sem vinna að velferð þeirra. Starfsemin lýtur fyrst og fremst að stuðningi, ráðgjöf, upplýsingaþjónustu og fræðslu. Sorgarmiðstöð er öllum opin og er þjónustan veitt gjaldfrjálst. Sorgarmiðstöð er einungis rekin á styrkjum og því ekki með öruggt fjármagn til að sinna starfseminni sem hefur vaxið gríðarlega frá því hún hófst árið 2019. ------ Sorgarmiðstöð, the grief center, aims to support the bereaved and all those who work for their well-being. The activities primarily concern support, advice, information services, and education. The grief center is open to everyone, and the service is free. The grief center is only run on grants and therefore needs secure funding to carry out the activities that have grown enormously since it started in 2019.
About This Cause
Þann 5. nóvember 2018 undrirrituðu fjögur grasrótarfélög á sviði sorgarúrvinnslu viljayfirlýsingu um stofnun Sorgarmiðstöðvar. Félögin eru: Ný dögun, Birta, Ljónshjarta og Gleym mér ei. Upphafið má rekja til vinnufundar í mars 2017 sem Ný dögun hélt í tilefni þess að 30 ár voru liðin frá upphafi starfseminnar árið 1987. Yfirskrift vinnufundarins var: „Hvað getum við gert betur í þjónustu við syrgjendur á Íslandi?“ Á #gerumbetur-fundinum komu saman 28 manns sem störfuðu með einum eða öðrum hætti með syrgjendum, ýmist úr heilbrigðisstéttum, frá lögreglu, Þjóðkirkjunni og áðurnefndum grasrótarfélögum. Fundurinn skilaði þeirri eindregnu niðurstöðu að bæta þyrfti þjónustu við syrgjendur af því sú aðstoð sem byðist væri of dreifð, ómarkviss og af ýmsu tagi. Æskilegast væri að koma upp miðstöð þar sem syrgjendur og aðrir gætu gengið að upplýsingum og þjónustu á einum stað, með símtali, heimsókn eða á vefsíðu. Þá kom vel fram það sjónarmið að stuðningur við syrgjendur ætti að falla undir „lýðheilsustarf“ sem sjálfsagður liður í heilsueflingu samfélagsins. Sorgarúrvinnsla miðar að því að efla og styðja við andlega, líkamlega og félagslega heilsu fólks eftir ástvinamissi. Félögin fjögur ákváðu að vinna áfram með niðurstöðu fundarins. Í nóvember 2018 var búið að vinna samþykktir fyrir Sorgarmiðstöð og fá kennitölu. Sótt var um styrk til velferðarráðuneytisins til að koma starfseminni á fót og fengust alls 2.5 mkr frá félagsmálaráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti. Á árinu 2019 var unnið að gerð heimasíðu og leitað að samastað fyrir Sorgarmiðstöð. Á sama ári var Hafnarfjarðarbær að koma á fót Lífsgæðasetri í fyrrum St. Jósefsspítala og leitaði stjórn Sorgarmiðstöðvar til bæjarins um samstarf við að koma Sorgarmiðstöð á fót í aðstöðunni. Þann 11. september var undirritaður samstarfssamningur milli Hafnarfjarðarbæjar og Sorgarmiðstöðvar um aðstöðu í Lífsgæðasetri St. Jó. 12. september 2019 tók Sorgarmiðstöð svo formlega til starfa í Lífsgæðasetri St. Jó. í Hafnarfirði um leið og heimasíðan var opnuð. Þrátt fyrir að vera nýtt félag þá er það byggt á sterkum grunni og mikilli þekkingu. Sorgarmiðstöð styður fjölda fólks árlega með því að bjóða upp á margskonar þjónustu. Í Sorgarmiðstöð er hægt að sækja mismunandi fræðsluerindi, koma í stuðningshóp, djúpslökun, opið hús, taka þátt í göngum eða mæta á námskeið. Einnig veitir Sorgarmiðstöð einstaklings ráðgjöf í síma eða á staðnum. Sorgarmiðstöð býður líka upp á fræðslu, ráðgjöf o.fl. í skólasamfélagið, fyrirtæki eða stofnanir við andlát starfsmanns, nemanda eða annara. Af þessu þá eru tveir stærstu stólparnir í okkar þjónustu stuðningshópastarfið og ráðgjafaþjónustan. Stuðningshópar í sorgarúrvinnslu eru ekki meðferð við sorg, en þeir geta bætt líðan þeirra sem syrgja og hafa þannig meðferðarlegt gildi. Markmiðið með hópastarfinu er að gefa syrgjendum rými og vettvang til að tjá líðan sína og veita þeim innsýn og skilning á margvíslegum birtingarmyndum sorgarferilsins. Þegar fólk kynnist, sem á það sameiginlegt að hafa misst ástvin, skapast oft dýrmæt samkennd og traust þar sem þátttakendur fá tækifæri til að þiggja stuðning og miðla eigin reynslu. Það er algengur misskilningur að í sorgarhópum sé fólk „að velta sér uppúr sorginni“. Verkefnið er að finna sorginni stað í hjartanu – til að geta haldið áfram að lifa. Það myndast oft hlý vináttutengsl í hópnum og þar er líka hlegið því húmorinn er afar mikilvægur og hjálplegur í sorginni. Sorgarmiðstöð býður upp ráðgjöf og upplýsingar til þeirra sem þess óska en ýmsir fagaðilar, aðstandendur o.fl. hafa þegið slíka þjónustu hjá Sorgarmiðstöð undanfarin ár. Sorgarmiðstöð býður einnig upp á einstaklingssamtöl þar sem hægt er að fá stuðning, ráðgjöf, fræðslu og upplýsingar um þá þjónustu sem er í boði. Þessi þjónusta er ætluð syrgjendum sem hafa misst ástvin vegna andláts eða aðstandendum þeirra. Hjá Ráðgjafarþjónustunni okkar starfa fagaðilar sem hafa mikla reynslu af stuðningi við syrgjendur en þeir deila einnig reynslu af ástvinamissi. Sorgarmiðstöð er einungis rekin á styrkjum og því ekki með öruggt fjármagn til að sinna starfseminni sem hefur vaxið gríðarlega frá því hún hófst árið 2019. --- On November 5, 2018, four grassroots organizations in the field of grief processing signed a memorandum of understanding on establishing a Grief Centre. The clubs are: Ný dögun, Birta, Ljónshjarta and Gleym mér ei. The beginning can be traced back to a workshop in March 2017 that Ný dögun held on the 30th anniversary of the birth of the activity in 1987. The workshop title was: "What can we do better in serving the bereaved in Iceland?" The #gerumbetur (#letsdobetter) meeting brought together 28 people who worked in one way or another with the bereaved, from the health professions, the police, the National Church, and the aforementioned grassroots associations. The meeting yielded the firm conclusion that services for bereaved people needed to be improved because the help offered needed to be more varied, effective, and of various kinds. Setting up a center where mourners and others could access information and services in one place, by phone, visit, or on a website would be preferable. The point of view that support for the bereaved should fall under "public health work" as a matter of course in the health promotion of society was well expressed. Grief processing aims to promote and support people's mental, physical, and social health after losing a loved one. The four organizations decided to continue working with the outcome of the meeting. In November 2018, the approvals for Sorgarmiðstöð were processed, and a social security number was obtained. A grant was applied to the Ministry of Welfare to establish the activity. ISK 2.5 million was received from the Ministry of Social Affairs and the Ministry of Health. In 2019, work was done on creating a website and looking for the exact location of the Grief Centre. In the same year, Hafnarfjörður town established a Quality of Life Center in the former St. Jósefsspítala, and the management of the Grief Center approached the city about cooperation in establishing a Grief Center in the facility. On September 11, a cooperation agreement was signed between Hafnarfjarðarbær and Sorgarmiðstöð regarding facilities in the Life Quality Center of St. Jo. On September 12, 2019, the Grief Center officially started working in the Life Quality Center of St. Jo. in Hafnarfjörður as soon as the homepage was opened. Despite being a new organization, it is built on a solid foundation and much knowledge. The grief center supports many people every year by offering various services. In the Grief Centre, you can attend different educational talks, come to a support group, deep relaxation, open house, participate in walks or attend a course. The Grief Center also provides individual counseling over the phone or on-site. A grief center also offers education, counseling, etc., to the school community, companies, or institutions upon the death of an employee, student, or other person. The two most significant pillars of our service are the support groups and the counseling service. Grief support groups are not a treatment for grief, but they can improve the well-being of those grieving and thus have therapeutic value. The group work aims to give the bereaved a space and platform to express their feelings and provide them with insight and understanding of the various manifestations of the grief process when people get to know each other, who have lost a loved one in common, valuable empathy and trust are often created, as the participants have the opportunity to receive support and share their own experiences. It is a common misconception that people are "reflecting on their grief" in grief groups. The task is to find a place for sadness in the heart - to be able to continue living. Warm friendships are often formed in the group, and there is also laughter because humor is essential and helpful in grief. Sorgarmiðstöð offers advice and information to those who want it, but various professionals, relatives, etc., have received such services at the Grief Center in recent years. The grief center also offers individual conversations where you can get support, advice, education, and information about the available services. This service is intended for bereaved people who have lost a loved one due to death or their relatives. Our Counseling Service is staffed by professionals with extensive experience in bereavement support who share the experience of losing a loved one. The grief center is only run on grants and therefore needs secure funding to carry out the activities that have grown enormously since it started in 2019. well-being. The activities primarily concern support, advice, information services, and education. The grief center is open to everyone, and the service is free. The grief center is only run on grants and therefore needs secure funding to carry out the activities that have grown enormously since it started in 2019.